Laufásprestakall

 

Aðventusamkoma í Grenivíkurkirkju

Aðventusamkoma verður í Grenivíkurkirkju sunnudaginn 11. desember kl. 17.00.  Kirkjukórinn syngur aðventu-og jólalög undir stjórn Hjartar Steinbergssonar organista.  Sr. Bolli les jólasögu.  Valgerður Sverrisdóttir flytur hugleiðingu.  Tónlistarnemendurnir Birta og Þorsteinn Jónsbörn og Gunnar Stefánsson leika á hljóðfæri.  Fermingarbörn flytja ljósahelgileik eftir sr. Pétur Þórarinsson.  Verið öll hjartanlega velkomin!

Bolli Pétur Bollason, 9/12 2011

Aðventustund á Grenilundi

Aðventustund verður á Grenilundi sunnudaginn 11. desember kl. 15.30.  Kirkjukórinn syngur jólalög undir stjórn Hjartar Steinbergssonar.  Sr. Bolli les jólasögu og Aðalheiður djákni flytur aðventu-og jólabænir.  Verið hjartanlega velkomin öllsömul!

Bolli Pétur Bollason, 9/12 2011

Aðventukvöld í Þorgeirskirkju

Sameiginlegt aðventukvöld Lundarbrekkusóknar, Ljósavatnssóknar og Hálssóknar verður haldið í Þorgeirskirkju laugardagskvöldið 10. desember kl. 20.30.  Kirkjukórinn syngur jólalög undir stjórn Dagnýjar Pétursdóttur.  sr. Bolli les jólasögu. Nemendur tónlistarskólans á Stórutjörnum leika tónlist undir eftirliti Jaan Alavere tónlistarkennara.  Aníta Þórarinsdóttir flytur hugleiðingu.  Fermingarbörn flytja ljósahelgileik.

Sjáumst á helgri aðventuhátíð!

Bolli Pétur Bollason, 6/12 2011

Fjölskyldustund á jólastarfsdegi í Laufási

Fjölskyldustund verður í Laufáskirkju við upphaf jólastarfsdags í Laufási sunnudaginn 4. desember kl. 13.30.  Barnakór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur.  Eva Margrét Árnadóttir harmonikkuleikari og Þóra Björk Stefánsdóttir fiðluleikari flytja ljúfa jólatónlist í upphafi stundar.  Jólasaga og jólasöngur.  Sjáumst í Laufási á helgri aðventu!

Bolli Pétur Bollason, 1/12 2011

Aðventubókakvöld í Laufási

Bókakvöld verður í þjónustuhúsinu í Laufási fimmtudagskvöldið 1. desember kl. 20.00.  Óskar Guðmundsson rithöfundur ræðir nýútkomið verk sitt um Þórhall Bjarnason biskup frá Laufási en Þórhallur var sonur hins fróma Laufássklerks Björns Halldórssonar og eiginkonu hans frú Sigríðar Einarsdóttur.  Saga Þórhalls er eftirtektarverð… Lesa áfram …

Bolli Pétur Bollason, 29/11 2011

Jólalaufásinn

Jólalaufásinn er kominn úr prentun og fer í dreifingu um prestakallið miðvikudaginn 30. nóvember.  Hér á heimasíðunni gefur að líta dagskrá aðventu og jóla þegar smellt er á linkinn Jólalaufásinn hér hægra megin á síðunni.  Sjáumst í kirkjunni á aðventu og jólum!

Bolli Pétur Bollason, 28/11 2011

Barnakór Svalbarðsstrandar

Barnakór Svalbarðsstrandar söng í fyrsta skipti einn í sunnudagaskóla í Svalbarðskirkju sunnudaginn 20. nóvember.  Kórinn hljómaði einstaklega vel undir stjórn Sigríðar Huldu Arnardóttur og Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur. Börnin sungu m.a. Lesa áfram …

Bolli Pétur Bollason, 20/11 2011

Sunnudagaskóli í Grenivíkurkirkju

Sunnudagaskóli verður í Grenivíkurkirkju sunnudaginn 20. nóvember kl. 13.00.  Hafdís og Klemmi, biblíusaga, brúður, myndir, nemandi leikur á orgelið o.fl.  Sjáumst í sunnudagaskólanum!

Bolli Pétur Bollason, 18/11 2011

Barnakór Svalbarðsstrandar syngur

Í sunnudagaskólanum í Svalbarðskirkju syngur nýstofnaður barnakór Svalbarðsstrandar núna á sunnudaginn 20. nóvember kl. 11.00 undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur og Sigríðar Huldu Arnardóttur.  Kórinn hefur æft vel og er nú reiðbúinn að syngja fyrir ströndunga.  Það er ljóst að kátt verður í höllinni og dýrmætt fyrir börnin að fá sveitunga  í kirkjuna til þess að hlusta á sig.  Það er góður stuðningur sem í því felst.  Verið velkomin í sunnudagaskólann í Svalbarðskirkju!

Bolli Pétur Bollason, 18/11 2011

Kántríguðsþjónusta í Þorgeirskirkju

Kántríguðsþjónusta verður í Þorgeirskirkju
sunnudagskvöldið 13. nóvember kl. 20.30.
Hjónin Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson
flytja kunn kántrílög er fela í sér sterkar
tilfinningar og trú. Lára spilar á fiðlu og
Hjalti á gítar. Sr. Bolli flytur Guðs orð og hugleiðingu.
Síðan er bara að grípa með sér kúrekahattinn og taka þátt í
kántríguðsþjónustu safnaðarins. Sjáumst!

Bolli Pétur Bollason, 7/11 2011

Sóknarprestur:
Bolli Pétur Bollason
Sími: 463-3106/864-5372
bolli@laufas.is
Viðtalstímar eftir samkomulagi

Sunnudagur

Fyrsti sunnudagur í mánuði:
Guðsþjónusta í Svalbarðskirkju kl. 11.00 (Börn ganga yfir í safnaðarstofu fyrir predikun og eiga þar barnastund)
Guðsþjónusta í Grenivíkurkirkju kl. 14.00 (Börn ganga yfir í safnaðarstofu fyrir predikun og eiga þar barnastund)
Guðsþjónusta á Grenilundi kl. 16.00.
Annan sunnudag í mánuði: Fermingarfræðsla Í Þorgeirskirkju kl. 11.00 (Fyrir fermingarbörn í Stórutjarnaskóla).
Guðsþjónusta í Þorgeirskirkju kl. 14.00
Þriðja sunnudag í mánuði: Sunnudagaskóli í Svalbarðskirkju kl. 11.00
Sunnudagaskóli í Grenivíkurkirkju kl. 13.00 Fermingarfræðsla fyrir börn í Grenivíkurskóla kl. 13.00-15.00 í safnaðarstofu Grenivíkurkirkju (byrjar á sunnudagaskóla)

Dagskrá ...