Æskulýðsfundur hjá æskulýðsfélaginu Skjálfanda verður í Þorgeirskirkju að kvöldi öskudags 22. febrúar kl. 19.00. Umræða um æskulýðsmót á Hrafnagili næstu helgi, vöfflur og leikir. Opin kyrrðarstund í lokin kl. 20.30. Hugljúfir tónar og bænir. Sjáumst í Þorgeirskirkju!
Bolli Pétur Bollason, 21/2 2012
Kirkjuskóli verður í Lundarbrekkukirkju í Bárðardal laugardaginn 18. febrúar kl. 14.00. Biblíusaga, biblíumynd, Hafdís og Klemmi, brúður koma í heimsókn og söngur fyllir kirkju og dal. Þið eruð öll svo hjartanlega velkomin, háir sem lágir, stórir sem smáir. Sjáumst í kirkjuskólanum!!
Bolli Pétur Bollason, 13/2 2012
Biblíudagurinn verður haldinn hátíðlegur í Þorgeirskirkju með messu sunnudaginn 12. febrúar kl. 14.00. Gengið verður að borði Drottins og munu verðandi fermingarbörn taka virkan þátt í þeirri göngu með ástvinum sínum og söfnuði en fermingar nálgast víst óðfluga. Dagný Pétursdóttir organisti og kórstýra leiðir sálmasönginn og kirkjukórinn verður þar jafnframt í lykilhlutverki. Molasopi í safnaðarstofu að lokinni stund. Verið öll hjartanlega velkomin!
Bolli Pétur Bollason, 10/2 2012
Messur verða á Grenivík og Svalbarðsseyri sunnudaginn 5. febrúar. Í Grenivíkurkirkju verður messað kl. 14 og á Grenilundi verður stund kl. 16. Kvöldmessa verður í Svalbarðskirkju kl. 20.30. Vakin skal sérstök athygli á því að ekki verður messað í Svalbarðskirkju kl. 11 heldur um kvöldið kl. 20.30. Lögð er rík áhersla á að fermingarbörn mæti með ástvinum sínum og gangi til altaris en nú líður að fermingum! Hjörtur Steinbergsson organisti stýrir tónlistinni og kirkjukórarnir syngja. Verið öll hjartanlega velkomin!!
Bolli Pétur Bollason, 30/1 2012
Æskulýðsfélagið Skjálfandi verður með fyrsta fund sinn á nýju ári í Þorgeirskirkju miðvikudaginn 25. janúar kl. 19.00. Á fundinum verður æskulýðsmót á Hrafnagili 24.-26. febrúar kynnt. Öll ungmenni í 8.-10. bekk velkomin! Æskulýðsfundurinn endar á kyrrðarstund kl. 20.30 sem er öllum opin. Sjáumst í kirkjunni!
Bolli Pétur Bollason, 24/1 2012
Vakin skal athygli á fermingarbörnum og dögum árið 2012 en nánar má kynna sér það þegar farið er inn á link hér hægra megin á síðunni.
Bolli Pétur Bollason, 9/1 2012
Kirkjustarfið í Laufásprestakalli hefst aftur á nýju ári 15. janúar með sunnudagaskólum í Svalbarðskirkju kl. 11.00 og Grenivíkurkirkju kl. 13.00. Allir velkomnir!
Bolli Pétur Bollason, 8/1 2012
Aftansöngur í Grenivíkurkirkju á gamlárskvöld kl. 18.00. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Hjartar Steinbergssonar.
Nýársguðsþjónusta í Draflastaðakirkju 2. janúar 2012 kl. 14.00. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Dagnýjar Pétursdóttur.
Verið velkomin og gleðilegt nýtt ár!
Bolli Pétur Bollason, 30/12 2011
Kæru sóknarbörn í Laufásprestakalli og aðrir landsmenn!
Yður er í dag frelsari fæddur! Guð gefi ykkur heilaga og bjarta jólahátíð og farsæld og frið á nýju komandi ári 2012. Sóknarprestur.
Bolli Pétur Bollason, 24/12 2011
Aðfangadagur jóla. 24. desember kl. 16.00. Aftansöngur í Svalbarðskirkju. Gunnar Björn Jónsson syngur einsöng……. Lesa áfram …
Bolli Pétur Bollason, 19/12 2011