Myndir frá fjölskylduhátíð.
Bolli Pétur Bollason, 22/5 2009
Hvítasunna er hátíð heilags anda. Andinn sá er kraftur sköpunar. Það að ljóða er að skapa og því er við hæfi að bjóða upp á svokallaðar ljóðaguðsþjónustur að kvöldi hvítasunnudags kl. 20.30 í Laufáskirkju, Lundarbrekkurkirkju, Svalbarðskirkju og Þorgeirskirkju. Þar sem sóknarklerkur getur ekki verið í öllum þessum kirkjum á sama tíma hefur hann fengið sr. Bjarna Karlsson til þess að þjóna í Lundarbrekkukirkju, sr. Hildi Eir Bolladóttur í Svalbarðskirkju, sr. Jónu Hrönn Bolladóttur og sr. Gylfa Jónsson í Þorgeirskirkju, sjálfur verður hann í Laufáskirkju. Ljóðræn stund og kyrrlát með kvöldtónum úr sálmabók. Þarna verður hægt að hvíla í andanum og hlýða á verk þeirra, sem hafa fengið andann yfir sig.
Verið velkomin og Guð gefi ykkur gleðiríka hvítasunnuhátíð!
Sóknarprestur
Bolli Pétur Bollason, 22/5 2009
„Vér horfum allir upp til þín,
í eilíft ljósið Guði hjá,
þar sem að dásöm dýrð þín skín,
vor Drottinn Jesús, himnum á.“
Jesús Kristur steig upp til himins og situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs. Við megum halda verki hans áfram hér á jörð okkur til farsældar. Það ætti að vera okkur ljúft og skylt. Uppstigningardagur er dagur aldraðra í kirkjunni. Á uppstigningardegi þann 21. maí næstkomandi kl. 11 verður því helg stund á Grenilundi. Um orgelleik sér Björg Sigurbjörnsdóttir og kirkjukórsfélagar styðja við almennan söng. Þið eruð öll velkomin!
Sóknarprestur
Bolli Pétur Bollason, 11/5 2009
Efnt verður til fjölskylduhátíðar í Svalbarðskirkju klukkan 11.00 og Grenivíkurkirkju klukkan 14.00, sunnudaginn 10. maí. Þá syngjum við saman Guði lof fyrir sumar og sól. Rebbi refur lætur sjá sig, biblíusaga sögð með loðmyndum og ungmenni spreyta sig í kristilegri spurningakeppni. Eftir kirkjustund verða síðan góðir grannar og grillaðar pylsur á vegi okkar og þorstanum svalað með Svala.
Bolli Pétur Bollason, 6/5 2009
Hér inni á myndasíðu safnaðarstarfsins eru komnar myndir úr innsetningarathöfninni sem fram fór í Grenivíkurkirkju þann 5. apríl síðastliðinn.
Bolli Pétur Bollason, 15/4 2009
Fermingarhátíðir eru framundan. Hér til hliðar á síðunni má fá upplýsingar um þau fermingarbörn sem fermast í prestakallinu vorið 2009.
Bolli Pétur Bollason, 2/4 2009
Hér inn á vefinn er komin dagskrá fyrir dymbilviku, páska og fermingar í prestakallinu.
Bolli Pétur Bollason, 30/3 2009
Ævinlega velkomin á vef Laufásprestakalls, sem mun miðla mikilvægum upplýsingum um starf kirkjunnar, myndum og ýmsu því öðru, sem minnir á, hvetur og gleður.
Bolli Pétur Bollason, 10/3 2009
Sóknarprestur:
Bolli Pétur Bollason
Sími: 463-3106/864-5372
bolli@laufas.is
Viðtalstímar eftir samkomulagi
Kirkjuskóli fyrir 1.-4. bekk í Valsársskóla síðasta fimmtudag í mánuði kl. 13.15-14.00 og fyrir 5.-7. bekk kl. 14.15-15.00.
Síðasta fimmtudag í mánuði er stund á Álfaborg á Svalbarðseyri kl. 11.30.
Fyrsta fimmtudagskvöld í mánuði æskulýðsfélag á Grenivík í safnaðarstofu Grenivíkurkirkju kl. 20.00-22.00. Hefst 3. nóvember.
Laufás. Sími 8645372 · Kerfi ![]()