Laufásprestakall

 

Messa í Þorgeirskirkju

Messað verður í Þorgeirskirkju sunnudaginn 11. október kl. 14.00. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Dagnýjar Pétursdóttur. Gengið verður að borði Drottins. Verið velkomin.

Bolli Pétur Bollason, 5/10 2009

Barnastundir í messum á Svalbarðseyri og Grenivík.

Barnastundir voru í safnaðarstofum kirknanna á Svalbarðseyri og Grenivík í gær á meðan messur fóru fram. Börnin mættu kát og glöð, hlustuðu á sögu, fengu mýslu í heimsókn og dunduðu sér við að lita á meðan foreldrar sóttu messu. Sjá má nokkrar myndir frá stundunum hér.

Bolli Pétur Bollason, 5/10 2009

Guðsþjónusta á Grenilundi.

Sunnudaginn 4. október kl. 16.00. Björg Sigurbjörnsdóttir leikur á orgel og kirkjukórsfélagar styðja við sönginn. Verið velkomin.

Bolli Pétur Bollason, 28/9 2009

Helgihald 4. október.

Messur verða í Svalbarðskirkju kl. 11.00 og Grenivíkurkirkju kl. 14.00 sunnudaginn 4. október. Kirkjukórarnir leiða sönginn undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur. Barnastundir verða í safnaðarstofum á meðan messu stendur í umsjá Sunnu Dóru Möller og Sólveigar Kristjánsdóttur. Verið velkomin.

Bolli Pétur Bollason, 28/9 2009

Sunnudagaskólinn hefst!

Sunnudagskóli í Svalbarðskirkju kl. 11.00 og sunnudagaskóli í Grenivíkurkirkju kl. 13.00 sunnudaginn 20. september. Líflegur sunnudagaskólasöngur, biblíusaga og brúðuheimsókn. Allir fá mynd til að lita. Sjáumst í sunnudagaskólanum.

Bolli Pétur Bollason, 14/9 2009

Léttmessa í Draflastaðakirkju

Sunnudagskvöldið 20. september kl. 20.30 verður léttmessa í Draflastaðakirkju í Fnjóskadal. Hermann Arason og Ásta Óskarsdóttir leiða hressandi tónlist. Gerður Dagný Pétursdóttir og Kristín María Hreinsdóttir syngja. Hjónin sr. Bolli Pétur Bollason og Sunna Dóra Möller flytja samtalshugleiðingu. Kaffi og með því í hlöðunni eftir stundina. Verið velkomin.

Bolli Pétur Bollason, 14/9 2009

Fermingarbarnaferð að Kiðagili.

Kátur hópur fermingarbarna í Laufásprestakalli, 12 að tölu, fóru að Kiðagili helgina 28.-29. ágúst. Leikir og gleði einkenndu dvölina. Vel var tekið á móti krökkunum sem fengu að heyra um tilhögun fermingarfræðslunnar í vetur ásamt sögu af útilegumönnum í Ódáðahrauni og trúarstefjum í kvikmyndum. Nú hefur verið raðað niður fermingarfræðslustundum í vetur og spennandi verður að eiga gefandi undirbúning með unga fólkinu fram að þeirri stóru ákvarðanatöku sem fermingin er. Guð blessi þann undirbúning.

Á myndina vantar Guðbjörgu Ósk Sveinsdóttur, Áshóli, Arnald Starra Stefánsson, Þórisstöðum og Einar Hákon Jónsson, Marbakka, sem þurftu frá að hverfa fyrir myndatöku. Einnig eru á myndinni systurnar Sigrún Hrönn og Matthildur Þóra sem eiga enn nokkur ár í fermingu.

Bolli Pétur Bollason, 11/9 2009

Vetrarstarf kirkjunnar rætt í Laufási.

Nú ættu allir í Laufásprestakalli að vera búnir að fá Laufásinn í hendur. Þar má finna eitt og annað um vetrarstarf kirkjunnar okkar. Sóknarnefndarfólk og organistar í Laufásprestakalli hittust í Laufási þriðjudagskvöldið 8. september síðastliðinn og ræddu um vetrarstarf kirkjunnar. Samveran hófst með helgistund í Laufáskirkju og síðan var drukkið vöfflukaffi á gamla prestsetrinu í Laufási. Þetta var góður samhristingur sem vakti upp ýmsar spurningar og hugmyndir um gott safnaðarstarf. Það er dýrmætt að hafa gott fólk sem er tilbúið til að styrkja og styðja við starfið í prestakallinu. Sóknarnefdarfólk var hvatt til að koma með ábendingar og hugmyndir um starfið í vetur og það á sömuleiðis við um öll sóknarbörn í Laufásprestakalli. Guð gefi okkur góðan vetur í kirkjunni.

Bolli Pétur Bollason, 11/9 2009

Fermingarbörn 2010.

Hér til hliðar á siðunni undir tenglinum “Fermingarbörn 2010″ má sjá lista yfir þau börn sem taka þátt í fermingarundirbúningi í prestakallinu og fermast vorið 2010.

Bolli Pétur Bollason, 8/9 2009

Fjölskylduguðsþjónusta í Þorgeirskirkju

Sunnudaginn 13. september kl. 14.00. Sálma og sunnudagaskólasöngur, biblíusaga, hugleiðing. Fermingarbörn vorið 2010 taka þátt. Athugið að guðsþjónusta verður annan sunnudag í hverjum mánuði kl. 14.00 í vetur. Verið hjartanlega velkomin.

Bolli Pétur Bollason, 8/9 2009

Sóknarprestur:
Bolli Pétur Bollason
Sími: 463-3106/864-5372
bolli@laufas.is
Viðtalstímar eftir samkomulagi

Sunnudagur

Fyrsti sunnudagur í mánuði:
Guðsþjónusta í Svalbarðskirkju kl. 11.00 (Börn ganga yfir í safnaðarstofu fyrir predikun og eiga þar barnastund)
Guðsþjónusta í Grenivíkurkirkju kl. 14.00 (Börn ganga yfir í safnaðarstofu fyrir predikun og eiga þar barnastund)
Guðsþjónusta á Grenilundi kl. 16.00.
Annan sunnudag í mánuði: Fermingarfræðsla Í Þorgeirskirkju kl. 11.00 (Fyrir fermingarbörn í Stórutjarnaskóla).
Guðsþjónusta í Þorgeirskirkju kl. 14.00
Þriðja sunnudag í mánuði: Sunnudagaskóli í Svalbarðskirkju kl. 11.00
Sunnudagaskóli í Grenivíkurkirkju kl. 13.00 Fermingarfræðsla fyrir börn í Grenivíkurskóla kl. 13.00-15.00 í safnaðarstofu Grenivíkurkirkju (byrjar á sunnudagaskóla)

Dagskrá ...