Laufásprestakall

 

Fjölskylduguðsþjónusta í Þorgeirskirkju

Sunnudaginn 13. september kl. 14.00. Sálma og sunnudagaskólasöngur, biblíusaga, hugleiðing. Fermingarbörn vorið 2010 taka þátt. Athugið að guðsþjónusta verður annan sunnudag í hverjum mánuði kl. 14.00 í vetur. Verið hjartanlega velkomin.

Bolli Pétur Bollason, 8/9 2009

Upplýsingar um sóknarnefndarfólk, organista og meðhjálpara.

Hér á hægri væng síðunnar, undir hlekknum “Laufásprestakall” gefur að líta upplýsingar um sóknarnefndarfólk, organista og meðhjálpara prestakallsins.

Bolli Pétur Bollason, 21/8 2009

Kirkjustarf fyrir 4.-7. bekk í Grýtubakkahreppi.

Kirkjustarf verður í kirkju og safnaðarstofu annan hvern fimmtudag í vetur eftir skóla kl. 13.45-14.45 fyrir 4.-7.bekk í Grenivíkurskóla. Fyrsta stundin verður fimmtudaginn 3. september og önnur stundin fimmtudaginn 17. september og svo koll af kolli.

Í kirkjustarfinu verður farið í leiki, sagðar Biblíusögur og unnin heilnæm og uppbyggileg verkefni. Í kirkjuna eru allir velkomnir og starfið er foreldrum að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar fást hjá sóknarpresti í síma 4633106 eða með tölvupósti á netfangið bolli@laufas.is.

Bolli Pétur Bollason, 21/8 2009

Kirkjustarf fyrir 1.-3. bekk í Grýtubakkahreppi.

Kirkjustarf fyrir 1.-3. bekk í Grenivíkurskóla verður annan hvern miðvikudag í mánuði í kirkju og safnaðarstofu í vetur. Starfið verður kl. 13.45-14.25 en þá er eyða í stundaskrá nemenda 1.-3. bekkjar. Fyrsta stundin verður miðvikudaginn 2. september og önnur stundin 16. september og svo koll af kolli.

Í kirkjustarfinu er farið í leiki, hlustað á sögur úr Biblíunni, unnin heilnæm og uppbyggileg verkefni. Í kirkjustarfið eru allir velkomnir og er það foreldrum að kostnaðarlausu.


Nánari upplýsingar fást hjá sóknarpresti í síma 463-3106 eða með tölvupósti á netfang bolli@laufas.is.

Bolli Pétur Bollason, 21/8 2009

Guðsþjónusta í Þorgeirskirkju

Guðsþjónusta í Þorgeirskirkju sunnudagskvöldið 23. ágúst kl. 20.00. Sr. Bolli Pétur Bollason leiðir guðsþjónustuna og sr. Hjörtur Pálsson predikar. Frumflutt verður lag eftir Örlyg Benediktsson tónskáld við ljóð sr. Hjartar sem hann tileinkar stað og sveit. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Jaan Alavere. Verið hjartanlega velkomin.

Bolli Pétur Bollason, 18/8 2009

Sumartónleikar í Laufáskirkju.

Sumartónleikar verða í Laufáskirkju sunnudaginn 9. ágúst kl. 20.30. Fjölbreytt efniskrá: ma. verk efir Samuel S. Wesley, Haydn, Mozart, Handel og þekktir sálmar. Sellósónata eftir Antonio Vivaldi.

Kirkjukór Seljakirkju syngur undir stjórn Jóns Bjarnasonar sem leikur á orgel.

Örnólfur Kristjánsson leikur á selló.

Orð og bæn sr. Bolli Pétur Bollason.

Allir hjartanlega velkomnir.

Bolli Pétur Bollason, 4/8 2009

Messa á Þönglabakka sunnudaginn 26. júlí kl. 14.00.

Áhugahópur um gönguferðir og helgihald á Þönglabakka boðar til messu næstkomandi sunnudag 26. júlí. Messað verður undir berum himni á grunni Þönglabakkakirkju. Byggð í Fjörðum lagðist af 1944 og kirkjan var tekin ofan. Þau sem vilja koma til messu geta ekið sem leið liggur í Hvalvatnsfjörð og gengið þaðan yfir hálsinn til Þönglabakka. Ætla má að aksturinn taki eina og hálfa klukkustund og síðan sé gengið í um það bil klukkustund. Áformað er einnig að fara frá Grenivík með bát í Þorgeirsfjörð ef sjólag heimilar. Þá þarf að fara með gúmmíbát í land því engin er bryggjan. Panta þarf pláss með bátnum hjá eigandanum Árna Dan í síma 8923189. Að messu lokinni verður kirkjukaffi, en óvíst er um lummur. Nánari upplýsingar í síma 8972221 (Kristján Valur) og 8958131 (Björn). Fyrsta messuferð af þessu tagi var farin á sama tíma síðastliðið sumar, þá voru messugestir 160 og komu gangandi, ríðandi og siglandi. Verið velkomin.

Bolli Pétur Bollason, 21/7 2009

Sumarorlof sóknarprests

Sumarorlof sóknarprests í Laufásprestakalli verður frá 10. júlí-1. ágúst. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir leysir hann af frá 10. -15. júlí, sími hennar er: 4621463/8984640 og sr. Hannes Örn Blandon leysir hann af frá 15. júlí-1. ágúst, sími hans er: 4631348/8997737. Guð gefi ykkur öllum gott og gefandi sumar.

Sóknarprestur

Bolli Pétur Bollason, 8/7 2009

Kyrrðarstund í Grenivíkurkirkju

Kyrrðarstund verður kl. 20.30 í Grenivíkurkirkju sunnudagskvöldið 5. júlí. Heilnæm stund í kvöldkyrrðinni, þar sem við syngjum kunna sálma, heyrum söguna um hórseku konuna og hugleiðingu út frá henni, biðjum fyrir sumri og ferðum fólks. Petra organisti leikur á orgelið. Kaffisopi í safnaðarstofu eftir stundina. Allir velkomnir!

Bolli Pétur Bollason, 29/6 2009

Fjölskyldustund á starfsdegi

Fjölskyldustund verður á starfsdegi í Laufási næstkomandi sunnudag kl. 13.30 í Laufáskirkju. Mikil hátíð verður á staðnum, sem vert er að upplifa. Í kirkjunni mun m.a. óma hressandi söngur, saga sögð og fleira sem eflir sinnið.

Verið öll velkomin.

Bolli Pétur Bollason, 29/6 2009

Sóknarprestur:
Bolli Pétur Bollason
Sími: 463-3106/864-5372
bolli@laufas.is
Viðtalstímar eftir samkomulagi

Fimmtudagur

Kirkjuskóli fyrir 1.-4. bekk í Valsársskóla síðasta fimmtudag í mánuði kl. 13.15-14.00 og fyrir 5.-7. bekk kl. 14.15-15.00.
Síðasta fimmtudag í mánuði er stund á Álfaborg á Svalbarðseyri kl. 11.30.
Fyrsta fimmtudagskvöld í mánuði æskulýðsfélag á Grenivík í safnaðarstofu Grenivíkurkirkju kl. 20.00-22.00. Hefst 3. nóvember.

Dagskrá ...