Sunnudagskvöldið 15. nóvember verður léttmessa í Þorgeirskirkju við Ljósavatn. Sálubót verður í syngjandi gospelsveiflu undir stjórn Jaan Alavere. Sr. Bolli Pétur Bollason þjónar og flytur hugleiðingu. Kaffisamfélag í safnaðarstofu eftir stund. Allir hjartanlega velkomnir.
Bolli Pétur Bollason, 9/11 2009
Sunnudagaskóli verður sunnudaginn 15. nóvember í Svalbarðskirkju kl. 11.00 og Grenivíkurkirkju kl. 13.00. Við veltum fyrir okkur sögunni um sáðmanninn sem fór út að sá, fáum góða brúðuheimsókn og mynd til að lita. Allir eru velkomnir, ungir sem aldnir, háir sem lágir.
Bolli Pétur Bollason, 9/11 2009
Biblíutexta sunnudagsins 15. nóvember má lesa hér!
Bolli Pétur Bollason, 9/11 2009
Fjölskylduguðsþjónusta verður í Þorgeirskirkju á kristniboðsdaginn 8. nóvember kl. 14.00. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson segir frá kristniboðsstarfi í Kenía. Biblíusaga, sálmar, barnasöngvar og mynd fyrir börnin að lita. Organisti er Dagný Pétursdóttir. Verið velkomin.
Bolli Pétur Bollason, 2/11 2009
Kyrrðarstund verður í Grenivíkurkirkju miðvikudagskvöldið 4. nóvember kl. 20.30. Ljúfir tónar, orð og bæn. Kaffisopi í safnaðarheimili að stund lokinni. Verið velkomin.
Bolli Pétur Bollason, 2/11 2009
Biblíutexta sunnudagsins 8. nóvember má sjá hér.
Bolli Pétur Bollason, 2/11 2009
Guðsþjónusta verður á Grenilundi á allra heilagramessu sunnudaginn 1. nóvember kl.16.00. Björg Sigurbjörnsdóttir leikur á orgel og félagar úr kirkjukór Grenivíkurkirkju styðja við sönginn. Verið velkomin.
Bolli Pétur Bollason, 27/10 2009
Sunnudagurinn 1. nóvember er allra heilagra messa, þá verður látinna minnst í bæn og þökk. Messað verður í Svalbarðskirkju kl. 11.00 og Grenivíkurkirkju kl. 14 .00. Barnastundir verða í safnaðarstofum á meðan messu stendur. Kirkjukórar leiða söng undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur organista. Verið velkomin.
Bolli Pétur Bollason, 27/10 2009
Biblíutexta næsta sunnudags má lesa hér.
Bolli Pétur Bollason, 27/10 2009
Biblíutexta sunnudagsins 25. október má lesa hér.
Bolli Pétur Bollason, 19/10 2009