Páskasunnudagaskólar verða í Svalbarðskirkju kl. 11 og Grenivíkurkirkju kl. 13 á pálmasunnudegi 1. apríl og það er ekki aprílgabb!! Páskasöngur, páskasagan, páskamynd, páskaeggjaleit, páska Hafdís og Klemmi o.sfrv. Sjáumst í páskasunnudagaskólanum!!
Bolli Pétur Bollason, 28/3 2012
Páskakirkjuskólar verða í Þorgeirskirkju kl. 11 og Lundarbrekkukirkju kl. 14 laugardaginn 31. mars. Mikill söngur, páskasagan, brúður, biblíumynd, páskaeggjaleit, Hafdís og Klemmi. Upprisinn er hann húrra húrra!! Sjáumst í Páskakirkjuskóla!!!
Bolli Pétur Bollason, 26/3 2012
Kirkjukórar Laufáss-og Grenivíkursóknar og Svalbarðssóknar sungu við messu á boðunardegi Maríu 25. mars í Akureyrarkirkju. Kórstjóri og organisti var Hjörtur Steinbergsson. Kórarnir sungu m.a. Máríuvers og Ave Verum Corpus og mæltist söngurinn á kórlofti vel fyrir. Að lokinni.. Lesa áfram …
Bolli Pétur Bollason, 25/3 2012
Kirkjukrakkar á Svalbarðsströnd fóru á kaffihúsið Kaffi-Bolli í safnaðarstofu Svalbarðskirkju fimmtudaginn 22. mars. Þar voru vöfflur á boðstólnum með rjóma og sultu. Það var etið, drukkið og sungið Daginn í dag á kaffihúsinu góða Lesa áfram …
Bolli Pétur Bollason, 22/3 2012
Kirkjukórar Laufáss-og Grenivíkursóknar og Svalbarðssóknar syngja við messu í Akureyrarkirkju sunnudaginn 25. mars kl. 11.00 undir stjórn Hjartar Steinbergssonar. Laufásprestakall býr við það lán að eiga stórgóða kirkjukóra og fá raddir tveggja fyrrnefndra kóra að hljóma í Guðshúsi þeirra Akureyringa. Sr. Hildur Eir Bolladóttir Lesa áfram …
Bolli Pétur Bollason, 21/3 2012
Sálubótarguðsþjónusta verður í Þorgeirskirkju kl. 20.30 sunnudagskvöldið 11. mars. Kórinn Sálubót syngur undir stjórn Jaan Alavere. Guðs orð, hugleiðing og bænir. Stund sem eflir sál og nærir. Verið velkomin!
Bolli Pétur Bollason, 11/3 2012
Fimmtudagskvöldið 8. mars kl. 20.00 munu Gunnar Harðarson og Mörður Árnason fjalla um nýútkomna bók Laufás við Eyjafjörð-Kirkjur og búnaður þeirra. Bókin er síðara bindi Harðar Ágústssonar um kirkjustaðinn Laufás. Fyrra bindið fjallaði um bæjarhúsin en hið síðara um kirkjurnar í Laufási, skrúða þeirra og áhöld. Í bókinni rekur Hörður sögu kirkna í Laufási allt aftur til þrettándu aldar.. Lesa áfram …
Bolli Pétur Bollason, 7/3 2012
Fjölskylduguðsþjónustur verða í Svalbarðskirkju kl. 11.00 og Grenivíkurkirkju kl. 14.00 sunnudaginn 4. mars, sem er svokallaður æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Dagurinn er helgaður ungu fólki í kirkjunni og fjölskyldum þess. Kirkjukórar sóknanna syngja æskulýðssöngva undir stjórn Hjartar Steinbergssonar. Barnakór Svalbarðsstrandar syngur í Svalbarðskirkju undir stjórn Sigríðar Huldu Arnardóttur. Æskulýðsdagurinn var orðinn föst……. Lesa áfram …
Bolli Pétur Bollason, 28/2 2012
Æskulýðsmót á Hrafnagili var haldið helgina 24.-26. febrúar. Um 80 ungmenni af Norðurlandi tóku þátt. Náðarhugtakið kom við sögu, ýmsir hópar störfuðu eins og tónlistarhópur, leiklistarhópur, fjölmiðlahópur, bænahópur, og myndlistarhópur. HÆNA hæfileikakeppni Norðausturlands fór fram í Akureyrarkirkju og mótið endaði á sunnudeginum í Svalbarðskirkju þar sem ávextir mótstarfsins urðu fólki vel sýnilegir. Hér eru nokkrar myndir frá mótinu…….. Lesa áfram …
Bolli Pétur Bollason, 28/2 2012
Öskudagur er kirkjudagur. Þá hefst langafasta. Dagurinn er hins vegar hinn litskrúðugasti og talsvert af sætindum koma við sögu. Krakkarnir á Grenivík heimsóttu kirkjuna á öskudaginn í allskonar búningum, þarna voru bófar og mafíósar, pappakassar og hrútspungar o.s.frv. Krakkarnir tóku lagið og var Daginn í dag mjög vinsælt í kirkjunni. Síðan gengu skrautlegir kvistir út úr safnaðarstofunni á Grenivík með Jesúmyndir og Síríuslengjur. Er ekki gaman að lifa? Lesa áfram …
Bolli Pétur Bollason, 22/2 2012