Aðventukvöld í Þorgeirskirkju
Sameiginlegt aðventukvöld Lundarbrekkusóknar, Ljósavatnssóknar og Hálssóknar verður haldið í Þorgeirskirkju laugardagskvöldið 10. desember kl. 20.30. Kirkjukórinn syngur jólalög undir stjórn Dagnýjar Pétursdóttur. sr. Bolli les jólasögu. Nemendur tónlistarskólans á Stórutjörnum leika tónlist undir eftirliti Jaan Alavere tónlistarkennara. Aníta Þórarinsdóttir flytur hugleiðingu. Fermingarbörn flytja ljósahelgileik.
Sjáumst á helgri aðventuhátíð!
Bolli Pétur Bollason, 6/12 2011 kl. 10.18