Afmælishátíð í Fnjóskadal
Hálskirkja og Illugastaðakirkja eru 150 ára á þessu ári. Af því tilefni verður efnt til hátíðar sunnudaginn 8. ágúst. Hátíðarguðsþjónusta verður í Hálskirkju kl. 11.00 þar sem Jón Aðalsteinn Baldvinsson Hólabiskup predikar. Hátíðarguðsþjónusta verður einnig í Illugastaðakirkju kl. 14.00 þar sem sr. Guðmundur Örn Jónsson prestur í Vestmannaeyjum og Fnjóskdælingur prédikar. Sr. Hjörtur Pálsson flytur frumsamið hátíðarkvæði í báðum guðsþjónustum. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Hjartar Steinbergssonar organista. Hátíðarkaffi verður í samkomusalnum á Illugastöðum eftir guðsþjónustu þar. Allir eru velkomnir.
Bolli Pétur Bollason, 3/8 2010 kl. 9.51